mr hunk
Hvað er að gerast á....
Bara uppá gamanið...
Heimasíður félagana
Barnaland
21.08.2008 19:12:54 / addi

NÝ BLOGGSÍÐA !!!

HEIL OG SÆL !!!

ÉG HEF ÁKVEÐIÐ AÐ FLYTJA LÍF MITT Á 123.IS VEGNA BREYTINGA!
KLIKKIÐ HÉR TIL AÐ SKOÐA


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.06.2008 16:38:37 / addi

EM - tippkeppni...

Heil og sæl...

Fyrir tveimur árum hélt ég HM tippkeppni hér á blogginu mínu sem gékk alveg ljómandi vel og nú í ár ætla ég að halda EM tippkeppni. Ég er búin að þróa þessa keppni til mikillar munar og vil ég endilega hvetja menn á að taka þátt. Látið fjölskyldu, nágranna og vini vita af þessari keppni því fleiri sem við erum því stærri vinningur verður í boði.
Núna vil endilega að allir sem vilja taka þátt commenta, sendi sms eða hringja í mig og látið mig vita hvert e-mailið ykkar sé. Í framhaldi á því mun ég senda þeim exel-skjal í pósti aftur með öllum leikjum sumarsins og þurfa þeir að fylla skjalið vel og vandlega út og senda mér það aftur fyrir opnunarleik sem er á laugardaginn kl:16:00.
Einnig þurfið þið að leggja inn 1.000 kr. inná reikning 0162-26-43536, kt: 010480-5159 og sá sem sigrar hirðir pottinn.

Stigakeppnin er eftirfarandi:


Rétt markatala á lið : 1 stig
Rétt markatala á leik : 3 stig
Rétt lið vann (1X2) : 1 stig
Rétt lið í 8 liða : 1 stig (hvert lið)
Rétt lið í 4 liða : 1 stig (hvert lið)
Rétt lið í úrslit : 5 stig (hvert lið)
Rétt lið sem sigrar EM : 7 stig
Markakóngur : 5 stig

» 17 hafa sagt sína skoðun

10.05.2008 12:22:08 / addi

SVONA ... fullorðins ...

Bloggleysið mitt hefur stafað af ósköð eðlilegri ástæðu, bilað að gera í einkalífi mínu. En núna eru breyttir tímar, vinna hjá Vís, sumarboltinn komin á fullt og fullt af tíma í að blogga og hanga á netinu. Fyrsti dagurinn hjá Vís var vandamál og helsta vandamálið fyrir daginn var hvernig ég átti að vera klæddur. Átti ég að mæta í gallabuxum og bol eða skyrtu eða í jakkafötum. Ég mætti fínklæddur haldandi þess að ég væri fínasti kallinn á svæðinu, ætlaði heldur betur að líta niðrá alla og sína þeim hvernig akureyrískt kyntröll líti út. Í staðin var ég bara einhver hippi í þjónustuverinu sem var settur útí horn að svara í síma. En þarna uppfylltist enn einn draumurinn minn á stuttum tíma, að mæta í jakkafötum í vinnuna. Núna er fullorðni kallinn kominn.

Fyrsta skiptið á ævinni er ég að vinna vinnu sem eru einungis 8 tímar á dag, frí um helgar og á frídögum, en þá tekur gæslan við.

Spurning um að fara hætta dyragæslunni ???

Núna í dag er ég orðin hálfgerður fjölskyldumaður og langar að eyða frítíma mínum með þeim.

Er það ekki skiljanlegt ???

Undanfarið hefur mér hlotist þann heiður að hafa kynnst tveim yndislegum manneskjum, manneskjum sem hafa breytt mínu lífi til muna. Að vera á heimili með 3 ára krakka eru forréttindi sem ég vona að allir eiga eftir að kynnast á lífsleiðinni. Að vera viðstæddur þegar gullmolar koma út úr litlum krökkum er ómetanlegt. Það er æðislegt hvað litlir krakkar eru fljótir að læra. Áður en þú veist af þá eru hlutir eins og hjartahnoð og blástur orðnir daglegir viðburðir ásamt „múni“ þegar þú kallar hana rassgat.

» 6 hafa sagt sína skoðun

27.02.2008 11:22:59 / addi

Þegar konur eldast. - Grein eftir Hjört Jónsson...

Það er mikilvægt fyrir karlmenn að muna, að eftir því sem konur eldast
verður erfiðara fyrir þær að halda sömu gæðum í húsverkunum og þegar þær
voru ungar. Þegar þú tekur eftir þessu, reyndu ekki að æpa á hana. Sumar
konur eru ofurviðkvæmar, og það er ekkert verra til en ofurviðkvæm kona..

Ég heiti Hjörtur. Ég ætla að segja ykkur hvernig ég tókst á við þetta ástand
varðandi konuna mína ? hana Hrönn. Þegar ég settist í helgan stein fyrir
nokkrum árum, þurfti Hrönn auðvitað að fá sér heildagsvinnu meðfram
hlutastarfinu, bæði til þess að auka tekjur heimilisins og halda sparnaði
okkar hjóna gangandi. Fljótlega eftir að hún fór að vinna tók ég þó eftir að
aldurinn fór að sjást á henni.

Ég kem venjulega heim úr golfi á sama tíma og hún kemur heim úr vinnunni.
Þó hún viti hvað ég er svangur, þá þarf hún næstum alltaf að hvíla sig í
hálftíma áður en hún fer að elda matinn. Ég æpi þó ekki á hana. Í staðinn
segi ég henni að taka þann tíma sem hún þarf og vekja mig bara þegar
maturinn er kominn á borðið. Ég borða venjulega hádegismat í
"Heiðursmannagrillinu" í klúbbhúsinu þannig að það er auðvitað ekkert á
dagskránni að fara út að borða.

Áður fyrr var Hrönn vön að vaska upp um leið og við vorum búin að borða. Nú
er hinsvegar ekkert óvenjulegt að það bíði jafnvel í nokkra tíma. Ég geri
það sem ég get með því að minna hana á það á nærgætinn hátt að diskarnir
þvoi sig ekki sjálfir. Ég veit að hún kann að meta þetta, þar sem það
virðist hvetja hana til að klára uppvaskið áður en hún fer að sofa.

Annað einkenni öldrunar er kvörtunaráráttan held ég. Til dæmis heldur hún
því fram að það sé erfitt að finna tíma til að greiða reikningana í
matartímanum. En strákar, við lofuðum að standa með þeim í blíðu og stríðu,
svo ég brosi bara og býð fram hvatningu. Ég segi henni bara að dreifa þessu
á tvo til þrjá daga. Þannig þarf hún ekki að flýta sér eins mikið. Ég minni
hana líka á að þótt hún missi af matartímanum af og til sé það allt í lagi (
þið vitið hvað ég meina ). Mér finnst reyndar nærgætni einn af mínum betri
kostum.

Þegar hún vinnur einfaldari verkefni, virðist hún halda að hún þurfi fleiri
hvíldarstundir. Hún varð til dæmis að taka pásu þegar hún var einungis
hálfnuð með að slá blettinn. Ég reyni að vera ekki með uppistand. Ég er
sanngjarn maður. Ég segi henni að útbúa sér stórt glas af nýpressuðum köldum
appelsínusafa og setjast í smástund. Og þar sem hún er að gera þetta, bið ég
hana að blanda einn fyrir mig í leiðinni.

Ég veit að væntanlega lít ég út eins og dýrlingur vegna þess hvernig ég styð
hana Hrönn mína. Það er ekkert auðvelt að sýna svona mikla tillitssemi.
Mörgum karlmönnum finnst það erfitt. Og mörgum finnst það alveg ómögulegt !
Það veit enginn betur en ég hversu pirrandi konur verða þegar þær eldast.

En strákar, ef þið hafið lært það af þessarri grein að vera nærgætnari og
minna gagnrýnir á konurnar ykkar sem eru að eldast ? lít ég svo á að þetta
hafi verið þess virði að setja á blað. Við megum ekki gleyma því að við
fæddumst á þessa jörð til hjálpa hver öðrum.

Kveðja,

Hjörtur Jónsson


Athugasemd ritstjóra:

Hjörtur Jónsson lést skyndilega þann 27. maí sl. af blæðingum í endaþarmi.
Samkvæmt lögregluskýrslu fannst Calloway extra löng 50 tommu Big Bertha
golfkylfa á kafi í rassgatinu á honum, þannig að aðeins stóðu tíu cm af
handfanginu út, og við hliðina var sleggja.

Hrönn konan hans var handtekin og ákærð fyrir morðið. Kviðdómurinn sem
eingöngu var skipaður konum var 15 mínútur að komast að niðurstöðu sem var
þessi: Við föllumst á það sem fram kemur í vörn Hrannar að Hjörtur hafi
einhvern veginn, án þess að gera sér grein fyrir því, sest ofan á eigin
golfkylfu.

» 3 hafa sagt sína skoðun

18.02.2008 13:43:36 / addi

Snjósleðaferðin mikla...

Það var seinnipart dags og myrkrið að skella á, snjókoma og skafrenningur magnast með hverri mínutu sem líður. Við Óli erum að fara í mína fyrstu snjósleðaferð og leiðin er haldið uppí fjöll fyrir ofan sveitabæinn hans. Þegar við erum komnir lengra og lengra uppá fjöllinn þá versnar alltaf skafrenningurinn og við stoppum annaðslagið til að ræða hvort við ættum að snúa við eður ei. Óli er fjallamaður mikill og þekkir fjöllinn út og inn og hann benti á það að það væri betra veður handan við hólinn. En við héldum áfram og þegar við vorum komnir aðeins lengra þá bilaði sleðin minn. Óli er tækjamaður mikill og þegar hann getur ekki gert við sleða uppá fjöllum þá er eitthvað mikið að. Og raunin var sú að hann hafði ekki tæki og tól né aðstöðu til að gera við sleðann og þar sem hann þekkir fjöllinn blindandi, þá ákvaðum við að hann myndi fara til baka og ná í kaðal til að draga sleðann minn heim meðan ég biði hjá sleðanum. Hann dreif sig að stað áður en veðrið myndi versna til muna. Ferðin átti að taka ca 30min í góðu veðri þannig að það var erfitt að spá fyrir hversu lengi það tæki hann að koma til baka. Hann var lagður af stað og ég sat þarna á sleðanum, vel klæddur og fór að hugsa hvenær ég ætti að leggja af stað ef hann myndi ekki láta sjá sig. Það var farið að myrkra og kuldinn varð alltaf meiri og meiri eins og skafrenningurinn. Það var farið að vera frekar kalt þrátt fyrir mikinn fatnað og tíminn leið frekar hægt. Það var komin tími á að Óli læti sjá sig en ekkert skeði nema meiri myrkur, meiri kuldi og meiri snjór. Ég var orðin hræddur um að hann væri villtur eða hafi slasað sig eitthvað og ég var farin að pæla í hvaða átt ég ætti að labba. Ég ákvað að þrauka í smá stund til viðbótar. Ekki var mér farið að hlýna þegar ég var búin að bíða í 4klukkutíma. Það var farið að fara mikið um í hausnum á mér um lífið og tilveruna, mögulega var líf mitt að taka enda. Var farin að meta hvað ég hefði þessa stundina og ég vildi nú ekki að það tæki enda strax. Ég var einn uppá fjöllum sem ég hafði aldrei komið á áður, það var mikið myrkur, mikill kuldi, mikill snjór og mikill skafrenningur og ég var að fara leggja af stað í einhverja átt sem vissi ekkert hvert liggi. Ég lagði af stað og þegar ég kom á einhverja hæð þar sem ég sá yfir stórt svæði fór ég að reyna pæla í hvert ég ætti að fara og hvort ég sæi Óla einhversstaðar þarna. Ég var nú lengi að taka ákvörðun hvert ég ætti að fara því þetta var nú frekar stór ákvörðun. Um leið og ég tók mitt fyrst skref í áttina sem ég ætlaði mér að fara í þá sá ég allt í einu ljós annarsstaðar frá. Ég beið og vonaðist eftir að þetta væri Óli og þegar nær dró reyndist raunin sú. Þvílikur tímapunktur sem hann lætur sjá sig, 10min seinna þá væri ég farin eitthvert enn lengra uppí fjall. Við drógum síðan sleðann heim og eina vandamálið á leiðinni var að sleðinn minn var bremsulaus og við vorum að fara mikið niðurá við. En það tókst furðuvel hjá Óla með því að sikksakka niður fjallið. Sjáiði til að hann Óli er áhættumaður mikill og ef hann þorir að renna sér niður fjall á bremslulausum sleða þá þorir hann öllu ;)

 

Reyndar var þetta önnur sleðaferðin mín og svo beið ég ekki í einhverja klukkutíma heldur 40min. Það var hábjart en ekki myrkur, það var skafrenningur og pínu kuldi en ég var nú ekki farin að pæla í hvort ég væri að fara deyja. Ég vissi nú sirka hvert ég myndi labba en var ekki lagður af stað þegar ég sá hann. En þrátt fyrir þessa reynslu held ég að ég sé að fá æði fyrir sleða og næsta kaup mitt er að kaupa 15milljóna króna sleða.


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.01.2008 15:35:04 / addi

Vandræða moment takk fyrir...

Eigum við að ræða aðeins um vandræðilega hluti. Ég hef sjaldan verið eins vandræðalegur og um daginn.

Þarna sit ég að ræða við félaga mína þegar ég sé stelpu labba inn sem ég kannast rosalega við. Ég fer aðeins að pæla í hver hún gæti verið þar sem hún minnti mig svona óendanlega mikið á systir minnar fyrrverandi. Ég var ekki enn sannfærður um að þetta hafi verið hún en þorði ekki að spyrja félaga mína að því, því það hefði nú verið helvíti vandræðalegt ef ég þekkti hana ekki. Eftir dágóðan tíma varð ég orðin nokkuð sannfærður um að þetta hafi nú ekki verið hún og ekki gat þetta verið mín fyrrverandi þar sem ég er nú nokkuð viss um að ég myndi þekkja hana hvar sem er. Þegar hún var að fara varð ég óendanlega forvitin og lét spurninguna flakka til félaga minna og spyr hvaða stelpa þetta sé og segi þeim að ég kannast svo mikið við hana. Ég fæ nú einhver skritin augnarráð frá þeim og svo segja þau. „Þetta er þín fyrrverandi“.


» 8 hafa sagt sína skoðun

10.01.2008 01:59:43 / addi

Hvers konar spurning er þetta...

Ég fékk furðulegustu spurningu í heimi frá einstaklingi sem þekkir mig mjög vel í dag
Hún spurði mig hvort ég hafi smakkað pepsí max nýlega!!

......HALLÓ...... NEI!!???


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.01.2008 18:19:49 / addi

Misheppnaður desembermánuður...

Eigum við að fara ræða hvað ég var misheppnaður/óheppin í desember. Hann byrjaði á frekar slæmu máli sem ég mun ekki gefa upp en svo komu lítil atriði miða við það en samt ekki það lítil.

  • Var búin að kaupa mjög flotta 2 l. jagermasterflösku og flutti hana inn. Auðvitað missti ég þær og þær brotnuðu. Flott Arnar.
  • Fyllti bensín á díselbíl, þurfti að dæla úr honum. Tapaði þar 15þús. Flott Arnar.
  • Myndavél tók mig á of miklum hraða. 30þús sekt. Flott Arnar
  • Kveikti í parketinu heima, óvart. Flott Arnar.
  • Fór til systir minnar um jólin. Skildi eftir opið og öll ljós kveikt. Sætti mig samt ekki við að þetta hafi verið ég.
  • Þvæ mér um hausinn í vitlausri sturtu. Baðherbergið fer á flot. Hvernig átti ég að vita að sturtan lekur.
  • Er að faðma félaga minn og rek hausinn í vegg og dett og fæ gat á hausinn. Fossblæddi í 40min. Flott Arnar.

Allt þetta gerðist á 10 dögum. Ég hefði frekar viljað lenda í þessu öllu heldur en í því sem ég mun ekki segja frá. Það var það slæmt og neyðarlegt og þeir sem þekkja mig vita að þarf mjög mikið til að ég segi ekki frá "skemmtilegum" sögum.


» 5 hafa sagt sína skoðun

26.12.2007 09:55:55 / addi

Hugleikur Dagsson...

Í bókmennta spjalli.

Þér hefur verið líkt við William Burroughs og Stephen King.
Um hvað er nýja bókin þín?

Lifandi bíl sem stundar heróín og endaþarmsmök.


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.12.2007 16:39:36 / addi

Ísland á morgun :) ...

Maður fer alltaf að gera eitthvað annað þegar maður þarf að fara pakka. Síðan þegar maður horfir á þessa 8véla fatahrúu fyrir framan mann þá nennnir maður ekki að fara brjóta saman þvottinn eða laga til og þrífa. Þetta er eina ástæðan fyrir að ég nenni að blogga núna og það er bara til að seinka verkefnunum mínum hérna. Stundum finnst mér miklu betra að gera allt á seinustu stundu. Með pinu stress en ekki of miklu þannig að maður verður pirraður og leiðinlegur, þá verður maður mun skipulagðari og rikkir þessu bara af. Núna þarf ég örugglega að vera fram að nótt að gera allt sem ég þarf að gera. En það er allt i lagi því Óttar kemur seint í kvöld og þá gerum við þetta saman. Það er svo leiðinlegt að gera þetta allt einn.

Jæja svo er heimleiðin á morgun. Förum snemma af stað til Köben og eigum ekki flug fyrr en um 20 til Íslands. Við munum ráfa um götur Köbens allann daginn á morgun í rólegheitum. Fáum okkur bjór og gott að borða og kannski rekumst við á jólagjafir. Annars er ég búin að kaupa fullt af jólagjöfum, mun eiga erfitt að koma þeim og fötunum mínum fyrir í einni tösku. Svo á fimmtudaginn keyri ég norður og það verður rosalegur dagur. Get beðið eftir honum og langar þess ekki.

Svo er eitt týpist. Eins og ALLTAF þegar ég ferðast á milli Danmerkur og Íslands, eða öfugt, þá er Liverpool leikur. Ég sagði þetta við strákana þegar ég kom síðast heim að það er alltaf leikur þegar ég er að ferðast og auðvitað var leikur þegar ég kom og einnig þegar ég fór. Ekki breyttist þetta að þessu sinni, helvítis. Eitthvað sem pirrar mig utan við að Liverpool tapar þá er það að missa af Liverpool leik.

Jæja best að fara elda núna, einn. Bara svona til að auka stressið á eftir.


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.12.2007 12:17:52 / addi

Hvað er málið? ...

Hvað er að mér? Hvað er ég að reyna sanna fyrir hverjum?
Ef ég þamba ekki hálfa Tequilla flösku eða heila Tópas þá þamba ég 26 bjóra.
Fatta bara ekki hvernig ég dett inn í þennan gír, eða bara að geta þetta.

Vaknaði haugafullur núna rétt áðan að reyna rifla upp gærkvöldið og gengur ílla. En veit að ég fór á Mcdonalds þegar ég fór heim, finn það á lyktinni af höndunum.

Jæja maður verður að reyna líta á björtu hliðarnar sem eru þær að þessi dagur verður fljótur að liða og styttra þangað til ég kem heim :)

Hafðu það betra en ég í dag.


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.12.2007 15:24:54 / addi

Læra, Læra, Læra...

Eina sem er að ske í mínu ömurlega lífi núna er að ég er að læra til 4 á nóttunni og vakna um 7 til að læra aftur. Annars er ég ekki að gera neinn skapaðan hlut. Ég reyndar tek mér rómantískan labbitúr á kvöldin með Óttari og spjöllum um hitt og þetta. Gaman að því nema það að alltaf á einum stað byrja ég að raula jólalög. Ég vil kenna einni manneskju um það þar sem ég er ekki að hlusta á nein jólalög hérna. En það er kannski alveg komin tími á það að fara hlusta á jólalög, koma jólin og svona. Hlakka bara óendanlega til að koma heim yfir jólin. Veit ekki enn hvar ég verð á aðfangadag og jóladag en það kemur þegar ég fer eitthvað að pæla í því. Hef ekki tíma til þess núna. En þið sem vitið það ekki þá eru mamma, pabbi og örvar að fara til Unnars í Jersey yfir jólin og ég fer ekki með. Of dýrt að fljuga þangað og svo heim. Svo tökum við Óttar okkur annað slagið klukkutíma pásu frá lærdómnum til að semja lag. Það er geggjað gaman, hann er textahöfundurinn og ég sem lagið. Við erum strax komnir með 3 lög, fyrsta var algjörlega glatað en hin eru aðeins skárri .
Þeir sem vilja heyra mig grenja þá er möguleiki á því í kvöld þegar Liverpool tekur á móti Marseille á Evrópukeppninni og ef Liverpool vinnur ekki þá eru þeir dottnir út og ég geng í skrokka á þeim sem gerir grín af því og fer að grenja. Þessi leikur er leikur tímabilsins.

» 2 hafa sagt sína skoðun

26.11.2007 15:50:46 / addi

Pæling dagsins...

Oft er holdsveikum höndin laus!

Oft missa holdsveikir andlitið!

Ekki það að ég sé eitthvað á móti holdsveiku fólki, þvert á móti. Ef holdsveikinnar nyti ekki við þá myndi maður líklegast hætta að finna varahluti úti á götu eins og putta, handlegg eða jafnvel eyra. Var að spá í hvernig best væri að geyma svona varahluti, þetta á það til að smita einhverri andskotans nálykt í mjólkina og það væri verra ef dóttir fengi sér eyra á brauð í staðinn fyrir skinku.

Finnst það líka svolítið forvitnileg pæling hvernig holdsveikum rís hold?!? Ætli það sé hægt? Brotnar það ekki bara af? Þetta er eitthvað sem ég þarf að ræða betur við félaganna.

» 4 hafa sagt sína skoðun

21.11.2007 15:06:40 / addi

Helviti...

Þar sem maður er búin að vera á fullu hérna í Dk í skólanum og æfa og ekki gefið mér tíma í að segja hvernig gengur hjá mér þá ákvað ég að taka mér smá tíma núna og segja stutt frá því.

Skólinn er helvíti. Þoli ekki að vera í grúbbuvinnunni og ekki skilja rassgat. Maður skilur alveg basic dönskuna og aðeins meira en það, en þetta er bara svo flókin danska sem þetta verkefni snýst um. Þar að leiðindum skil ég eitthvað voða takmarkað,  get ekki skrifað neitt,  gagnrínt neitt,  komið með mína skoðun á þessu eða neitt. Ég sit þarna og er að reyna einbeita mér á því hvað þau eru að segja og eftir nokkra klukkutíma er maður þreyttur á því og endar síðustu tímana á því að einbeita sér á því að sofna ekki. Svo þarf ég að lesa 5 bækur á dönsku, eina á ensku og eina á norsku fyrir eitt helvítis fag. En þetta er örugglega allstaðar svona í háskólum þannig að ég nenni ekki að tuða lengur um það, fæ hvort sem er hausverk á að hugsa um þetta.

Það er að fækka í íbúðinni okkar. Emmi ákvað að hætta í skólanum, akkurat útaf þessu með grúbbuna sem ég var að tala um, og er að fara heim til Íslands á föstudaginn. Eini kosturinn við þessar fréttir er að ég fæ loksins herbergi en ég hef verið að gista á sófanum í stofunni. Hefði nú samt viljað hafa hann áfram til að gera grín af honum. Það er gaman að honum og eini maðurinn sem ég þekki sem geltir án þess að vita að því.

Jæja ég þarf að drífa mig á boxæfingu og láta berja mig J búin að komast að því að ég er bæði masokisti og sadisti þannig að boxið hentar mér ágætlega.


» 6 hafa sagt sína skoðun

11.10.2007 23:40:13 / addi

Fórnarlamb nr2...

Það fallega(sta) við Óttar er að hann tekur engu gríni inná sig. Það er hægt að drulla yfir hann hægri vinsti og engin hlær meira en hann. Virkilega góður eiginleiki að hafa og virkilega nauðsynlegur ef þú ætlar að vera vinur minn. Þar sem mér finnst gaman að drulla yfir fólk, annaðslagið, og það fólk sem á sér vandamál og halda að þau geta ekki gert neitt í málunum.

Óttar er næsti opinberlegi einstaklingurinn sem ég tek fyrir. Hann er með einstaklega "fallega" bumbu sem honum þykir afskaplega vænt um og þar sem hann gat slitið sjálfan sig frá naflastrengnum mömmu sinnar þá hélt hann að hann gæti slitið sig frá ástinni sinni (aka bumbulíisnum). Ég skil nú samt ekkert í honum af hverju hann vill losna við hana því hún kemur mér alltaf til að hlæja. Þetta er hörð bumba og mótuð eins og hann sé búin að vera með belti alla ævi. Greinilega búin að móta hana fyrir sjálfan sig þannig að hann nær góðu gripi til að lyfta henni upp til að geta þrifið á sér tittlinginn annað slagið, ekki vill hann að vinurinn myglist. Skemmtileg mótun á bumbu og rosa fyndin þegar hann hoppar. Eitt skiptið, af mörgum, kemur Óttar haugafullur heim, klæðir sig úr öllum fötunum og byrjar að hoppa og segir svona við mig; sjáðu tittlinginn á mér hoppast svona upp og niður og hlær eins og mongólíti. Það var ekki það fyndna, heldur sást ekkert í tippið á honum útaf bumbunni og bumban svo hörð að hún hreyfðist ekki og svo sá maður brjóstin og undirhökuna á honum á fleygi ferð.

En þar sem móðir hans var hæst ánægð með að eiga naflastrengin  fyrir sjálfan sig þá er hún enn spenntari fyrir að sonur hennar endir ekki sem feiti maðurinn hjá offitusjúklingunum. Óttar og fjölskylda hans hafa beðið eftir því í ár að fá mig hingað til Danmerkur til að taka hann loksins í gegn. Móðir hans vill EKKI fá hann um jólin svona feitann eins og hún sagði við mig, samt sem áður þá var hún ekki efins um það að hún elskaði hann þrátt fyrir að vera svona eins og hann er.

Ég byrjaði nú að taka hann í gegn en það leið ekki langur tími á að ég hafði gefist upp. Ekkert hægt að gera ef maðurinn er svo sannfærðu um það að pylsur væri inn í "hall of fame" listanum yfir hollustu fæði og koktelsósa væri salatdressing.  Þess vegna erum við hér, reyna að brjóta hann niður og svo byggja hann upp.

Þegar hann kemur heim af djamminu sest hann alltaf hjá mér og byrjar að klappa mér. Ég segi honum að fara sofa en hann tekur það ekki gilt og hvíslar í eyrað á mér að ég skuli bara halda áfram að sofa, og strýkur á mér kynnina og kyssir á mér ennið. Allt í lagi að vera svona góður strákur en þegar hann strýkur mér með höndunum sem hann er nýbúin að dýfa í burger king borgara þá fitna ég með honum með að þefa af þeim.

Óttar vill meina að hann sé misskilinn og að hann sé ekki svona feitur, hann er krúttlegur (Bara verst að krúttlegt fólk fær ekki að ríða Óttar minn). Hann er bara bókstaflega fullur af skít. Maðurinn getur ekki drullað þar sem það eru hundruðþúsundir af graftarbólum sem stíflar endaþarminn á honum. Prufaðu að sprengja fleiri en 15 bólur í hvert skiptið þegar þú þarft að losa og þá kannski fer meira út en inn.  

Óttar má alveg vera krúttlegur ef hann vill. Hann á örugglega eftir að  drepast af hamingju og fá fullt að riða, og þá meina ég ekki þessum fötluðu hundum sem hann er alltaf að eltast við. Heldur alvöru 200kg kvennmanni með vill endilega láta sleikja á sér allann líkamann. Gangi þér vel að fullnægja henni Óttar.


» 47 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Heimsóknir
Í dag:  5  Alls: 38410
Könnun
Hvernig finnst þér Eurovision lagið ???